Fara í efni

Sambýlið Pálsgarður - Laust starf til umsóknar

Óskað er eftir starfsmönnum í sumarafleysingar sumarið 2020

Markmið starfsins:

Góð umönnun, virðing og vinsemd. Fylgjast með andlegri og líkamlegri líðan íbúa.
Veita íbúum félagslegan stuðning og aðstoð við almenn störf á heimilum íbúa svo sem þrif og matseld. Stuðningur til sjálfshjálpar, samfélagslegrar þátttöku og almennrar virkni. Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.

Hæfniskröfur:

Áhugi á að starfa með fötluðu fólki með umhyggju og virðingu að leiðarljósi. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og lipurð í mannlegum samskiptum. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Starfshlutfall: 50-100% eða eftir samkomulagi
Starfsheiti: Starfsmaður á sambýli III
Launakjör: Starfið hentar konum jafnt sem körlum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Vinnutími: Unnið er á vöktum allan sólarhringinn samkvæmt vaktaskýrslu sem lögð er fram með sex vikna fyrirvara og samkvæmt samkomulagi við yfirmann ( Einnig er hægt að bera fram séróskir ).

Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2020 -  Hvetjum karla jafn sem konur að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2020.  Hvetjum karla jafn sem konur að sækja um.
Hægt er að sækja um störfin rafrænt á vef Norðurþings.
 

Nánari upplýsingar veitir Hilda Rós Pálsdóttir - hilda@nordurthing.is eða í síma 464 6100.