Fara í efni

Starf laust til umsóknar

Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir starfsmanni í Þjónustan heim.

Markmið starfsins er að aðstoða og valdefla einstaklinga með sérstakar stuðningsþarfir til virkni og sjálfstæðrar búsetu.

Starfið felst í að veita stuðning og umönnun þar sem þarfir einstaklinga eru hafðir að leiðarljósi. Starfsmaður vinnur samkvæmt einstaklingsbundinni þjónustuáætlun. Þjónustunotendur eru einstaklingar með sérstakar stuðningsþarfir vegna öldrunar, fötlunar eða annarra langvarandi veikinda.

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi og áhugi á að afla sér aukinnar þekkingar með námi eða þátttöku á námskeiðum og starfsmenntun. 
  • Sjúkraliða- eða félagsliðamenntun er kostur. 
  • Jákvæðni, þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði. 

Umsóknarfrestur er til og með 8. nóv. 2018.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. desember n.k.

Vinnutími er frá 08:00 - 16:00.
Starfshlutfall er 80%-100%. Starfshlutfall gæti að einhverju leyti verið sveigjanlegt s.s. tvær 50% stöður.

Hægt er að sækja um störfin rafrænt á heimasíðu Norðurþings, www.nordurthing.is

Nánari upplýsingar veitir Fanney Hreinsdóttir
fanney@nordurthing.is eða í síma 464 6100.