Fara í efni

Starf laust til umsóknar - Skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur

Tónlistarskóli Húsavíkur hefur verið starfræktur frá árinu 1961. Skólinn hefur aðsetur í Borgarhólsskóla og er samstarf skólanna tveggja umtalsvert. Frá árinu 1992 hefur verið í gangi samstarfsverkefni Tónlistarskólans við Borgarhólsskóla og leikskólann Grænuvelli sem hefur það að markmiði að bjóða öllum börnum á aldrinum 4-8 ára upp á markvissa tónlistarkennslu. Uppeldishlutverk Tónlistarskólans er því mikið. Stöðugildi við skólann eru 7,5 og nemendur um 230.

Starfslýsing

Fullt starf skólastjóra Tónlistarskóla Húsavíkur er laust til umsóknar. Kennsluhlutfall er samkvæmt kjarasamningi.

Leitað er að stjórnanda sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi og framsækið skólastarf í samvinnu við starfsfólk, foreldra og nemendur. Leitað er eftir stjórnanda sem hefur sterka sýn á faglega þróun innra starfs skólans. Jafnframt að styrkja stöðu skólans í nærumhverfinu með markvissu samstarfi við aðrar mennta- og menningarstofnanir.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af stjórnun og/eða faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í tónlistarskóla
  • Forystuhæfileikar, mikil samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar
  • Framhaldsmenntun (meistaranám) á sviði tónlistar, stjórnunar eða sambærilegra greina æskileg
  • Kennslureynsla í tónlistarskóla

Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2019.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til fræðslufulltrúa Norðurþings á netfangið jon@nordurthing.is

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík í síma 464 6100 eða með fyrirspurnum til Skrifstofustjóra Norðurþings á netfangið beggah@nordurthing.is