Stjórnsýsluhús
Stjórnsýsluhús Norðurþings á Húsavík
Í Stjórnsýsluhúsinu fer fram megin hluti allrar skrifstofustarfsemi sveitarfélagsins, í húsinu eru félags- og skólaþjónustan til húsa, skrifstofur stjórnsýslusviðs og Orkuveitu Húsavíkur en gjaldkeri OH er stðasettur á Raufarhöfn. Hlutverk starfseminnar í Stjórnsýsluhúsinu er fyrst og fremst að veita íbúum og stofnunum sveitarfélagsins þjónustu ásamt því að vera tengiliður við fyrirtæki og stofnanir innan og utan sveitarfélagsins.
Helstu verkefni eru:
Bókhald, starfsmannahald, launagreiðslur, tölvuvinnsla, fjármálastjórn, áætlanagerð, innheimta á tekjum bæjarins, álagning gjalda og almenn afgreiðsla og símaþjónusta. Þar er ennfremur skjalasafn sveitarfélagsins og almenn upplýsingaþjónusta, m.a. vegna afgreiðslumála sveitarstjórnar og nefnda.