Fara í efni

Bangsadagur 27. október!

Miðvikudaginn 27. október höldum við að sjálfsögðu upp á alþjóðlega bangsadaginn hér á safninu. Allir krakkar sem heimsækja safnið fá að lita bangsamyndir og taka þátt í getraun í tilefni dagsins og auðvitað er bangsi í verðlaun. Þá verður upplestur fyrir börn kl. 17:00. Dregið verður úr getraun kl. 17:30.  Allir velkomnir :)