Fara í efni

Fréttir

Nokkrar nýjar bækur í dag

Sjá nánar hér: Nýtt efni
11.01.2008
Tilkynningar

Breyttur opnunartími

Nýr opnunartími tekur gildi í dag,  2. janúar 2008 Mánudaga - fimmtudaga opið frá kl. 10-18 Föstudaga kl. 10-17 Laugardaga kl. 11-14 Sunnudaga: Lokað
02.01.2008
Tilkynningar

Opnunartími um jól og áramót

Opnunartími um jól og áramót verður sem hér segir:
19.12.2007
Tilkynningar

Enn meira nýtt efni!

Nú er jólabókaflóðið í hámarki.  Alltaf eitthvað nýtt á bókasafninu.  Sjá nánar hér.
10.12.2007
Tilkynningar

Upplestur úr nýjum bókum 7. desember!

Lesið verður uppúr nýútkomnum bókum á bókasafninu föstudagskvöldið 7. desember nk.  kl. 21:00 Meðal annars verður lesið úr bókunum Óreiða á striga og Sagan um Bíbí Ólafsdóttur.  Allir velkomnir.
04.12.2007
Tilkynningar

Upplestur

Í desember mun bókasafnið að venju standa fyrir upplestri úr nýútkomnum bókum í samstarfi við ITC Flugu og Bókabúð Þórarins Stefánssonar.  Nánar auglýst síðar.
23.11.2007
Tilkynningar

Föndursýning

Nú stendur yfir föndursýning á bókasafninu.  Á sýningunni eru ýmsar tegundir föndurs,  svo sem jólakort, keramik, jólakúlur, grænlenskur perlusaumur og gler.  Allir velkomnir.
19.11.2007
Tilkynningar

Og enn meira nýtt efni...

Enn bætist við nýtt efni á bókasafninu.  Sjá nánar hér. Nú eru Bókatíðindin sívinsælu komin út, nauðsynlegt hjálpargagn þegar velja skal bók. Bókatíðindi eru líka birt á veraldarvefnum, sjá hér.
14.11.2007
Tilkynningar

Lestrarátak!

Í tilefni af degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember efnum við til lestrarátaks meðal barna vikuna 12. - 16. nóvember.  Öll börn, 16 ára og yngri, sem taka að láni 5 bækur eða fleiri fá  fría DVD-mynd að láni.
09.11.2007
Tilkynningar

Bangsadagurinn 2007

Haldið var upp á bangsadaginn á bókasafninu laugardaginn 27. október.  Rúmlega 60 manns mættu á safnið og hlustuðu á upplestur, lituðu myndir og fleira.  Alls tóku 40 börn þátt í léttri getraun og að sjálfsögðu var bangsi í verðlaun.  Myndir frá bangsadeginum má sjá hér.
29.10.2007
Tilkynningar

Lumar þú á föndri?

Fyrirhugað er að halda árlega föndursýningu á bókasafninu í lok nóvember. Áhugasamir hafi samband við starfsfólk bókasafns í síma 464 6165
24.10.2007
Tilkynningar

Nýtt efni streymir inn

Nú er jólabókvertíðin hafin.  Alltaf eitthvað nýtt að bætast við. Skoða má nýjar bækur hér.
23.10.2007
Tilkynningar