Hér að neðan má sjá starfsáætlun frístundar skólaárið 2018-2019. Þar er að finna hvaða daga er opið, hvenær eru skipulagsdagar o.s.frv. Starfsdagatalið var samþykkt á fundi Fjölskylduráðs þann 13. ágúst 2018.
Frístundarvistun er í boði fyrir börn í 1.-4. bekk þar sem hlutverkið er að bjóða upp á fjölbreytt tómstundastarf sem hentar öllum. Frístund er opin frá kl. 13:00 eða frá því að skóla líkur og til kl. 16:00. Börnin mæta sjálf í frístund en 1. bekkur fær fylgd frá starfsmanni frístundar að skóla loknum. Starfsfólk frístundar hjálpar einnig til við að minna börnin á íþrótta og tómstundastarf sem er stundað á vistunartíma.
Opið er fyrir umsóknir í frístund í Túni á Húsavík fyrir krakka í 1-4 bekk fyrir skólaárið 2017-2018.
Fyrsti opnunardagur í frístund verður fyrsta skóladag (23.ágúst).