Fara í efni

Ljóð unga fólksins 2008

Þöll, samstarfshópur um barnamenningu á bókasöfnum, efnir til ljóðasamkeppni fyrir ungt fólk á aldrinum 9-16 ára. Skilafrestur ljóða er til 14. mars nk. og má hver þátttakandi senda inn 3 ljóð. Þátttakendur skiptast í tvo aldurshópa, 9-12 ára og 13-16 ára.  Ljóðunum verður að fylgja nafn höfundar, aldur, heimilisfang og símanúmer. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú bestu ljóðin í hvorum flokki. Verðlaun verða afhent í tengslum við alþjóðadag bókarinnar 23. apríl. Vinningsljóðin ásamt úrvali ljóða úr keppninni verða gefin út á bók. Ljóðum skal skilað á Bókasafnið á Húsavík, eða önnur söfn sem taka þátt í samkeppninni.