Fara í efni

Verðlaunasamkeppni um slagorð fyrir bókasöfn

Kynningarnefnd bókasafna efnir til samkeppni um slagorð til að nota í kynningarátaki fyrir bókasöfn.Slagorðið þarf að eiga við allar tegundir bókasafna, hvort sem um er að ræða almenningsbókasöfn, skólabókasöfn eða sérfræðisöfn. Því er ætlað að koma jákvæðum skilaboðum á framfæri um bókasöfn og þarf að vera stutt, grípandi og gott að muna. Frestur til að skila inn hugmyndum er til 20. mars 2008. Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða veitir 100.000 króna verðlaun fyrir besta slagorðið. Verðlaunin verða veitt á degi bókarinnar, þann 23. apríl. Sendið hugmyndir í tölvupósti á bokasafn@bokasafn.is eða merkt "verðlaunasamkeppni" á:Bæjarbókasafn Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn Nánari upplýsingar á www.bokasafn.is Með von um frjóar og góðar hugmyndir, Kynningarnefnd bókasafna, Barbara Guðnadóttir, Bæjarbókasafni Ölfuss Hólmkell Hreinsson, Amtsbókasafninu á Akureyri Hrafnhildur Þorgeirsdóttir, Upplýsingadeild Orkustofnunar Kristín Ósk Hlynsdóttir, Bókasafni Ríkisútvarpsins Marta Hildur Richter, Bókasafni Mosfellsbæjar Þóra Gylfadóttir, Bókasafns- og upplýsingaþjónustu Háskólans í Reykjavík