28.01.2011
Kannt þú að lesa?
Áhugavert samstarf Bókasafns og Þekkingarnets
Yndislestur á Bókasafninu á Húsavík með Eyrúnu Tryggvadóttur. Í leshringnum verða
lesnar fjórar til sex bækur. Áhersla verður lögð á nýlegar íslenskar skáldsögur
sem ýmist hafa litla athygli fengið eða verið umdeildar. Rithöfundar munu heimsækja hópinn og ræða um verk
sín.
Námskeiðið hefst 10. febrúar kl. 18:30-20:00 og er síðan aðra hverja viku til 7. apríl. Verð: 19.500,-
Skráningarfrestur er til 4. febrúar 2011.
Skráning í síma 464-5100 og á hac@hac.is
Lesa meira
27.01.2011
... að ef þú tekur DVD eða myndbönd að láni á fimmtudegi má hafa það fram á
mánudag!
Lesa meira
14.01.2011
Nokkar nýjar Dvd-myndir fyrir börn og fullorðna hafa bæst við safnkostinn í þessari viku. Er ekki kominn tími til að líta
við á bókasafninu?
Lesa meira
10.01.2011
Vantar þig eitthvað að lesa? Komdu þá á bókasafnið!
Lesa meira
03.01.2011
Starfsfólk Bókasafnsins á Húsavík óskar lánþegum og landsmönnum öllum gleðilegs nýárs með þökkum
fyrir síðastliðið ár. Með nýju ári verða þær breytingar að opnunartími safnsins breytist lítillega, en framvegis
verður opið 11:00-17:00 mánudaga og föstudaga en 10:00 - 18:00 þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga eins og verið hefur. Þá verða einnig
mannabreytingar á safninu en Sigrún Kjartansdóttir lét af störfum um áramót og í hennar stað kemur Bryndís Sigurðardóttir
bókavörður.
Lesa meira
16.12.2010
Nú spáir hann illa og af því tilefni erum við með 2 fyrir1 tilboð á öllum DVD myndum til útleigu í dag og á
morgun! Verið velkomin á Bókasafnið.
Lesa meira
14.12.2010
Komdu þá á bókasafnið - nýjar bækur streyma inn!
Lesa meira
10.12.2010
Hinn árlegi jólabókaupplestur var haldinn hér á safninu í gærkvöldi en þá hlýddu á þriðja tug manns
á upplestur rihöfundanna Lilju Sigurðardóttur og Þórunnar Erlu-Valdimars, auk þess sem lesararnir Halla Loftsdóttir, Rannveig Benediktsdóttir
og Erla Sigurðardóttir lásu úr nýútkomnum bókum ýmissa höfunda.
Lesa meira
29.11.2010
29. nóvember til 3. desember stendur yfir okkar árvissa föndursýning - sjón er sögu ríkari, allir velkomnir.
Lesa meira