Ellen og Eyþór halda tónleika á Kópaskeri í tónleikaröð Flygilvina 2025
Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson halda tónleika laugardaginn 13. september kl. 20 í skólahúsinu á Kópaskeri.
Á efnisskránni verða íslensk sönglög, sálmar og ýmis lög sem Ellen hefur sungið á ferli sínum.
…………………..
Ellen Kristjánsdóttur söngkonu þekkja flestir Íslendingar. Á löngum og litríkum ferli hefur hún sungið fjölda laga sem lifa með þjóðinni. Samstarf hennar við Magnús Eiríksson og Mannakorn hefur verið sérlega árangusríkt en auk þess hefur hún m.a. gefið út 6 diska í eigin nafni og 2 diska með bróður sínum, Kristjáni. Diskur hennar, Sálmar, hlaut íslensku tónlistarverðlaunin árið 2004.
Eyþór Gunnarsson píanó- og hljómborðsleikari kom fyrst fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni Mezzoforte, sem hann stofnaði ásamt félögum sínum árið 1977. Sveitin starfar enn við góðan orðstír og spilar árlega víða um heim. Eyþór hefur auk þess verið afkastamikill í íslensku tónlistarlífi, hefur tekið þátt í fjölda tónleika og gerð u.þ.b 200 hljómdiska með mörgum af þekktustu listamönnum þjóðarinnar.
Miðaverð er kr. 3500 en ókeypis fyrir börn á grunnskólaaldri.
Posi verður á staðnum.
Hér er hlekkur á viðburðinn á Facebook
