Fundarboð aðalfundar Hitaveitu Öxarfjarðarhéraðs HF.
FUNDARBOD
AÐALFUNDAR HITAVEITU ÖXARFJARÐARHÉRAÐS HF.
Aðalfundur Hitaveitu Öxafjarðarhéraðs hf. 430894 2779 vegna rekstrarársins 2024 verður haldinn í Öxi Kópaskeri þann 23. apríl 2025, kl. 20.00.
Viðskiptamenn veitunnar (notendur) eru hvattir til að mæta og kynna sér rekstur veitunnar og tillögur að breyttri reglugerð og skilmálum. Atkvæðisrétt hafa þó þeir einir sem eiga hlut í veitunni eða eru með gilt umboð frá hluthöfum.
Á dagskrá aðalfundar verða eftirfarandi mál:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið reikningsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
3. Kosning stjórnar og varastjórnar.
4. Kosning endurskoðanda.
5. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
6. Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins á reikningsárinu.
7. Kynning og umræður um tillögu að uppfærðri reglugerð fyrir veituna.
8. Umræður um mögulega breytingu á skilmálum tengigjalda og verðskrá til skoðunar fyrir næsta ár.
8. Önnur mál sem löglega eru upp borin
Kópaskeri 7.04.2025
F.h. stjórnar Hitaveitu Öxafjarðarhéraðs hf.
Kristján Þ. Halldórsson
Hluthafar geta fengið ársreikninginn sendan í tölvupósti. Þeir sem það vilja, vinsamlegast skrifið til Kristjáns í netfang borgartangi@simnet.is. Sama gildir um tillögu að uppfærðri reglugerð fyrir veituna, ásamt minnisblaði með boðun aðalfundar. Stefnt er að því að minnisblað og drög að breyttri reglugerð verði aðgengileg á vefsíðunni oxarfjordur.is og samfélagsmiðlum fyrir fundinn. Það bíður þó yfirferðar ráðuneytis.