Fara í efni

Sólstöðuhátíð 2025

Sólstöðuhátíðin árið 2025 verður haldin á Kópaskeri helgina 20-22 júní

Hverfisráð Öxarfjarðar hefur tekið að sér að skipuleggja Sólstöðuhátíðina í ár, ásamt Atvinnu- og samfélagsfulltrúa Öxarfjarðarhéraðs og gengur vel. Þó nokkrir viðburðir hafa þegar verið staðfestir. Reynt verður að hafa fjölbreytta dagskrá sem höfðar til sem flestra. 😊 🎈

Búið er að semja við landsþekktan tónlistarmann, Stefán Jakobsson (Stebba Jak), sem mun halda tvenna stutta tónleika á hátíðinni, þ.e. á laugardeginum. Fyrri tónleikarnir verða um miðjan daginn og er hugsaður fyrir alla aldurshópa. Frítt verður á þá tónleika. Seinni tónleikarnir verða um kvöldið og munu þeir marka upphafið á balli kvöldsins þar sem þessi Stebbi ætlar að koma gestum í stuð fyrir ballið. Svo er aldrei að vita nema hann haldi eitthvað áfram. Hljómsveitin sem spilar undir hjá honum um kvöldið er, að mestu, skipuð tónlistarfólki úr héraðinu. 🎸 🎵

Flygilvinir eru að halda upp á 20 ára afmæli sitt á árinu og verða með glæsilega tónleika þar sem flott tónlistarfólk kemur fram. Þau ætla að flytja fjölbreytta og vandaða dagskrá sönglaga, aría ofl. Allt er þetta atvinnutónlistarfólk sem hefur stutt við Flygilvini með ráðum og dáð og komið fram á tónleikum með þeim nokkrum sinnum síðastliðin 20 ár. Flest eiga þau rætur að rekja til Kópaskers. 🎷 🎼

Aðalheiður Þorsteinsdóttir, píanóleikari, á ættir að rekja til Kópaskers og kom að starfsemi félagsins strax í aðdraganda stofnunar þess með vali á flygli sem afasystir hennar og nafna gaf íbúum staðarins 2005. Hún hefur við fjölmörg tækifæri lagt félaginu lið með komu sinni og tónleikahaldi og þá gjarnan með aðra listamenn með sér.
Þórhallur Barðason, baritónsöngvari og söngkennari ólst upp á Kópaskeri. Hann hefur sömuleiðis komið til Flygilvina í nokkur skipti, ýmist einn eða með öðrum tónlistarmönnum.
Lilja Guðmundsdóttir, sópran, er alin upp á Kópaskeri og menntuð í söng frá háskóla í Vínarborg. Bjarni Thor Kristinsson, bassasöngvari og eiginmaður Lilju, er hámenntaður söngvari og með langa starfsreynslu í óperuhúsum víða erlendis og hér á Íslandi. Þau Lilja og Bjarni hafa, líkt og Aðalheiður og Þórhallur, sungið á tónleikum Flygilvina í fjölmörg skipti.
Aðrir viðburðir sem verða á hátíðinni.

- Kjötsúpa verður á föstudagskvöldinu og er stefnt að því að hún verði við skólahúsið.
- Hin árlega Sólstöðuganga verður á föstudagskvöldinu en ekki er búið að staðfesta hvert verður gengið að þessu sinni.
- Brúðubíllinn verður á staðnum til að skemmta börnunum.
- Kvenfélagið Stjarnan verður með kaffihlaðborð á laugardeginum.
- Björgunarsveitin Núpar munu sjá um grillveislu á laugardagskvöldinu.
- Leikir verða fyrir börnin á laugardeginum á vegum íþróttafélagsins Þingeyings.
- Stefán Haukur, íbúi á Kópaskeri, verður með Hellinn opinn og Bluegrass bandið Snarrót spilar þar á föstudagskvöldinu. Heimafólk getur leiðbeint þangað.
- Formleg úthlutun styrkja úr frumkvæðissjóði Brothættra byggða II verður á laugardeginum.
- Helgistund verður á sunnudeginum í Snartarstaðakirkju.
- Í Yst bragga verður sýning en eftir á að staðfesta hvernig henni verður háttað. Gert er ráð fyrir að opið verði frá 11-16 föstudag, laugardag og sunnudag.

Verið er að skoða fleiri viðburði og mögulega verður hægt að bæta við dagskrána.

Íbúar eru hvattir til að skreyta þorpið. 🛕 🏰
Veittar verða viðurkenningar fyrir best skreyttu götuna og best skreytta húsið.

Öllum er velkomið að taka þátt í hátíðinni þannig að ef þú ert með hugmynd að einhverju eða vilt halda einhvern viðburð endilega hafðu samband við atvinnu- og samfélagsfulltrúa (einar@nordurthing.is).

Endanleg dagskrá kemur fljótlega þannig að fylgist vel með! 💗 🥳