Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum um styrki ÖÍS

Alþingi hefur ákveðið að veita auknum fjármunum í verkefnið Brothættar byggðir árinu 2020. Verkefnisstjórn hefur í ljósi þess ákveðið að framlengja áður auglýstan umsóknarfrest og eru nú 13,5 milljónir alls til ráðstöfunar í sjóðum Öxarfjarðar í sókn. Frestur til að sækja um er til sunnudagsins 10. maí 2020. Athugið að úr sterkustu umsóknunum mun verkefnisstjórn velja 1-2 umsóknir sem gefst færi á að sækja í svokallaðan Öndvegissjóð Brothættra byggða. Nánari upplýsingar á meðfylgjandi blaði frá Byggðastofnun.

Meginmarkmið Öxarfjarðar í sókn eru eftirfarandi:

- Framandi áfangastaður

- Framsækni í matvælaframleiðslu

- Uppbyggilegt samfélag

- Öflugir innviðir

Væntanlegar umsóknir þurfa að taka mið af þessum markmiðum.
Á vef Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is) eru nánari reglur um styrkveitingar. Á vef Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga  (www.atthing.is) má nálgast umsóknareyðublað sem umsækjendur um styrk skulu notast við en þar má einnig finna yfirlit yfir áherslur verkefnisins.
Athugið að ekki er krafist mótframlags frá umsækjanda en það styrkir umsókn ef verkefnið laðar fram fjármuni og krafta aðstandenda verkefnisins og annarra samstarfsaðila og/eða leiðir til samstarfs aðila sem að jafnaði starfa ekki saman.  Að þessu sinni eru 13,5 m. kr. til ráðstöfunar (áður auglýstar 5  + 8,5 m.kr.).
Verkefni sem verða styrkt að þessu sinni og hljóta styrk úr sérstakri úthlutun  er Alþingi samþykkti á þessu ári þurfa að vera hafin í síðasta lagi 1. september 2020 og lokið eigi síðar en 1. apríl 2021 og eru umsækjendur beðnir um að hafa það að leiðarljósi við gerð umsókna.

Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Charlotta Englund verkefnisstjóri í síma 849-4411 eða á netfanginu lotta@ssne.is umsóknum skal einnig skilað á þessu netfangi.

 

https://www.nordurthing.is/static/files/OIS/mfmf/styrkauglysing-2020-bb-auka.pdf

https://www.nordurthing.is/static/files/OIS/mfmf/auglysing-vegna-fjarfestingarataks-i-brothaettum-byggdum.pdf