Fara í efni

​Veðurskipið Líma og Iceland Airwaves á ferð um landið 10. til 14. júní.

Veðurskipið Líma og Iceland Airwaves á ferð um landið 10. til 14. júní.  dj Flugvél og geimskip, Emmsjé Gauti og Agent Fresco.

Bolungarvík, Grenivík, Raufarhöfn, Breiðdalsvík og Reykjanesbær.

Iceland Airwaves blæs til tónleika hringinn í kringum landið í júní.  Ferðin ber yfirskriftina "Veðurskipið Líma" og með í för verða Emmsjé Gauti, Agent Fresco og dj flugvél og geimskip.  Auk þess munu sigurvegararnir úr Músíktilraunum Rythmatik koma fram sem sérstakir gestir í Bolungarvík. Frítt verður inn á alla tónleika og verða eftirtaldir staðir heimsóttir auk Bolungarvíkur: Grenivík, Raufarhöfn, Breiðdalsvík og Reykjanesbær. Miðar á Iceland Airwaves verða gefnir heppnum tónleikagestum á hverjum stað. Tónleikarnir eru í samstarfi við Rás 2, Egils Appelsín og Hertz. 

10. júní Bolungarvík – Félagsheimilið
11. júní Grenivík – Grenivíkurskóli

12. júní Raufarhöfn – Félagsheimilið Hnitbjörg

13. júní Breiðdalsvík – Frystihúsið

14. júní Reykjanesbær – Hljómahöllin
 

Allir tónleikar hefjast kl. 20:00