Fara í efni

ÁLAGSPRÓFUN Á JARÐHITAKERFI ÞEISTAREYKJA, GÆTA ÞARF FYLLSTU VARÚÐAR SÖKUM HEITS VATNSSTREYMIS FRÁ HLJÓÐDEYFUM

ÁLAGSPRÓFUN Á JARÐHITAKERFI ÞEISTAREYKJA, GÆTA ÞARF FYLLSTU VARÚÐAR SÖKUM HEITS VATNSSTREYMIS FRÁ HLJÓÐDEYFUM

 
Mynd:landsvirkjun.is
Mynd:landsvirkjun.is

Þriðjudaginn 14. október hefst álagsprófun á jarðhitakerfinu á Þeistareykjum.

Prófunin felst í því að allar vinnsluholur á svæðinu eru látnar blása, þ.e. eru opnaðar
og jarðhitavatni og gufu er hleypt í hljóðdeyfa sem standa við holurnar. Megin
tilgangurinn með prófuninni er að staðfesta áætlanir um afkastagetu þeirra borholna
sem búið er að bora.

Með prófuninni er líkt eftir orkuvinnslu fyrirhugaðrar virkjunar, skoðuð þau áhrif
sem hún kann að hafa á jarðhitakerfið og metin þörf á frekari borunum næstu ár.
Auk þess verður tækifærið nýtt til þess að mæla áhrif álagsprófana á hljóðstig við
Þeistareyki. Vel er fylgst með styrk brennisteinsvetnis í lofti og eru upplýsingar úr
mælitækjum í Kelduhverfi, Reykjahlíð og Vogum birtar á vef Umhverfisstofnunar
www.loftgæði.is

Vegfarendur á svæðinu eru hvattir til að gæta fyllstu varúðar í námunda við
hljóðdeyfa þar sem vatn sem streymir frá þeim er mjög heitt.
Ábendingum má koma á framfæri við Landsvirkjun í sima 515-9000 eða á netfangið
landsvirkjun@landsvirkjun.is. Nánari upplýsingar um fyrirhugaða virkjun má
nálgast á heimasíðu Landsvirkjunar:
http://www.landsvirkjun.is/Rannsoknirogthroun/Virkjunarkostir/Theistareykir/