Fara í efni

Biskup Íslands í heimsókn

Frá Skinnastaðarprestakalli:

         Um næstu helgi gerist sá merkisviðburður að Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir mun vísitera prestakallið.

        Þá mun hún heimsækja nokkur fyrirtæki og stofnanir og prédika við guðsþjónustur sem hér segir:

         Föstudaginn 11. apríl kl. 17:00 verður helgistund með einföldu sniði í Snartarstaðakirkju.

         Á föstudagskvöld kl. 20: 30 verður guðsþjónusta í Raufarhafnarkirkju. Kór Raufarhafnarkirkju leiðir söng.

         Á pálmasunnudag 13. apríl verður messa í Skinnastaðarkirkju kl. 11:00. Kór Garðs- og Skinnastaðarkirkju leiðir söng.

         Allir velkomnir, yngri sem eldri,  í hvaða guðsþjónustu sem er.

         Fjölmennum og tökum vel á móti Biskupi Íslands !

 

Sóknarprestur og sóknarnefnd