Fara í efni

Blokkin að fyllast !

Það var heldur betur nóg að gerast um helgina þegar flutt var inní þrjár íbúðir á Aðalbraut 67-69
Hluta af íbúðunum er búið að gera upp frá A til Ö af miklum sóma. Þegar þetta er skrifað er því búið í öllum íbúðum nema tveimur, en þær sem auðar standa eru ekki tilbúnar ennþá.

Blokkin hefur gegnið í endurnýjun lífdaga síðustu mánuði, búið er að skipta um þak, glugga og klæða að mestu leiti. Eins er búið að gera mikið innandyra.