Fara í efni

Bókalestur þriðjudaginn 15. nóvember kl: 14:30 Breiðablik og kl: 20:00 í félagsheimilinu

Joachim B. Schmidt les úr bók sinni Kalmann. Joachim fæddist í Sviss 1981 en hefur búið á Íslandi frá 2007. Hann er mörgum Raufarhafnarbúum kunnugur þar sem hann skrifaði stóran hluta bókarinnar á Raufarhöfn. Aðal sögupersónan Kalmann Óðinsson er sjálfskipaður lögreglustjóri á Raufarhöfn, gengur um með kúrekahatt og Mauserskammbyssu sem amerískur afi hans komst yfir í Kóreustríðinu og verkar næstbesta hákarl á landinu. Kalmann er sérvitringur einfaldur og klókur í senn, sér lífið í kringum sig öðrum augum en annað fólk og er í nánu sambandi við náttúru og umhverfi. En svo hverfur valdamesti maður þorpsins, sem hefur líf þess í hendi sér og virðist flæktur í vafasamt athæfi, Kalmann finnur stærðar blóðpoll við Heimskautsgerðið og allt fyllist af lögreglu og fjölmiðlamönnum sem spyrja óþægilegra spurninga. Bókin Kalmann hlaut frábæra dóma þegar sagan kom út í Sviss 2020 og komst á metsölulista Der Spiegel, bókin hefur selst vel hér á landi, og er fullkomin í jólapakkann.