Fara í efni

Dagskrá Menningar- og Hrútadaga!

Hér geturðu smellt til að sjá bæklinginn og dagskráin er eftirfarandi:

Dagskrá Menningar- og Hrútadaga 26. September- 3. Október.

Laugardagur 26. sept
Fyrirtækja barsvar– fyrirtæki bæjarins mæta hvert öðru í æsispennandi spurningakeppni.  Lið geta skráð sig hjá Ingibjörgu í síma 855-1160, tveir í liði. Allir hvattir til að koma og hvetja liðin áfram!
Staðsetning: Félaginn Bar
Tími: 20:00 

Sunnudagur 27. sept
Gönguferð
Halldóra  hjá Ferðafélaginu Norðurslóð leiðir gönguferð um svæðið. 
Staðsetning: Mæting við Heimskautsgerðið
Tími: 11:00

Raufarhafnarsögur-Sagnadagur
Hugmyndavinna um sagnaarfinn sem tengist Raufarhöfn og hvernig væri hægt að gera meira úr honum.Fræðsla um hvernig hægt er að nýta það að segja sögur, t.d. í tengslum við ferðaþjónustu, í skólum og félagsstarfi.
Dagskrá sagnadagsins hentar öllum sem hafa áhuga á sögum, líka þeim sem ekki telja sig hafa hæfileika til segja sögur.  Sigurborg og Ingi Hans koma frá Grundarfirði og hafa mikla reynslu af að segja sögur og halda sagnanámskeið.  Frítt!
Staðsetning: Félaginn Bar
Tími: 14:00 

Mánudagur 28. sept
Raufarhafnarsögur– sagnakvöld
Opið sagnakvöld með Raufarhafnar– og allskonar sögum. Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir!
Sigurborg og Ingi Hans leiða kvöldið
Staðsetning: Hnitbjörg
Tími: 20:00 

Þriðjudagur 29. sept
Bíó
Bíó fyrir börnin klukkan 17:00 og fullorðinsbíó klukkan 20:00. Popp og gos selt á staðnum.
Staðsetning: Hnitbjörg 

Miðvikudagur 30. sept
Fatamarkaður- Rósin Tískuverslun
Staðsetning: Hnitbjörg
Tími: 15:00-18:00

Félagsvist
Staðsetning: Hnitbjörg
Tími: 19:30 

Fimmtudagur 1. okt
Skrínukostur
Eins og fyrri ár verður haldin skrínukostur.  Allir koma með veitingar á hlaðborð og eiga góða stund saman. Aðilar sem hafa áhuga á að koma með innslag á skrínukost mega setja sig í samband við einhvern úr nefndinni.
Staðsetning: Hnitbjörg
Tími: 18:30 

Föstudagur 2. okt
Tónleikar með Bjartmari Guðlaugssyni
Upphitun fyrir Hrútadaginn er  í  höndum Bjartmars og við treystum honum fyllilega fyrir því.
Staðsetning: Hnitbjörg
Tími: 20:00– 22:00
Verð: 2000 kr 
Félaginn Bar opinn frá klukkan 22:00 

Laugardagur 3. okt
Hrútadagskrá- Faxahöll
Ýmislegt spennandi verður á dagskrá og má þá nefna:

  • Gísli Einarsson verður á staðnum og setur daginn
  • Sölubásar með ýmsan varning.
  • Kjötmatssérfræðingur verður á staðnum og sýnir hvernig matið fer fram
  • Rúningskappar sýna réttu tökin
  • Barnadagskrá
  • Hrútahlaup sem engnn má missa af
  • Hrútadagsnefnd stígur á svið með óvænta uppákomu
  • Kótilettufélagið mætir á staðinn og velur kótilettuhrútinn!
  • Rúsínan í pylsuendanum- sala á hrútum sem gæti endað með uppboði og margt fleira..

Staðsetning: Faxahöll
Tími: 14:00-18:00

Næring
Hlaðborð á Hótel Norðurljósum– minnum á að panta þarf borð í síma 465-1233
Gallerý Ljósfang verður opið með léttari rétti á boðstólnum, pylsur og fleira.
Tími: 18:00-20:00

Skemmtikvöld- Hnitbjörg
Hagyrðingar mæta á svæðið og hagyrðast eins og þeim einum er lagið.  Á milli vísna verða tónlistaratriði í boði Kidda Halldórs.
Tími: 20:00-23:00

Hrútadagsball- Hnitbjörg
Þá er ekkert eftir nema að skella sér í gúmmara, lopapeysuna,  fylla á pelann og arka á ball.
Dansband Akureyrar leikur fyrir dansi og er ekki búist við öðru en argandi skemmtilegheitum á ballinu.
Nú skal slett úr klaufum sem aldrei fyrr!
Gísli Einarsson sjónvarpsmaður verður kynnir yfir daginn og leiðir alla skemmtun!
Verð: Skemmtikvöld og Hrútadagsball: 4500 kr
Verð: Hrútadagsball: 3000 kr
Ef húsið er yfirgefið fyrir 23:00  fást 1500 kr. endurgreiddar  gegn framvísun miðans

ATH: rangt verð í Skeglunni!