Fara í efni

Gönguferð í Fossdal á sunnudaginn

 Ferðafélagið Norðurslóð efnir til gönguferðar sunnudaginn 19. júlí nk. í Fossdal í  Gunnólfsvíkurfjalli.
 Gangan er í tengslum við káta daga á Þórshöfn og nágrenni.
 Gengið verður niður í Fossdalskjaft í mikilli náttúrfegurð, þar er fallegt stuðlaberg og mikil nánd við ósnortna náttúruna. 
 Stutt og létt ganga, tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Farið frá keðjunni á veginum upp á fjallið kl. 13:00. 

Fararstjóri verður Reimar Sigurjónsson.