Fara í efni

Hverfisráð Raufahafnar

Norðurþing auglýsir eftir framboðum og tillögum um einstaklinga í hverfisráð Raufarhafnar. Gjaldgengir fulltrúar í hverfisráð eru allir einstaklingar 18 ára og eldri sem hafa lögheimili á nærsvæði viðkomandi hverfis í sveitarfélaginu.
Greidd er þóknun fyrir fundarsetu fulltrúa í hverfisráðum. Nauðsynlegt er við val á fulltrúum í hverfisráð, að horft verði til fjölbreytileika sem endurspeglar samfélagið, þ.m.t. með tilliti til kynferðis, aldurs, uppruna og annarra samfélagsþátta.

 Tillögur um einstaklinga í hverfisráð berist skriflega á netfangið nanna@nordurthing.is eða í síma 8688647 FYRIR kl. 12:00 þriðjudaginn 20. ágúst 2019.