Fara í efni

Íbúafundur á Raufarhöfn

Íbúafundur á Raufarhöfn verður í félagsheimilinu Hnitbjörgum, þriðjudaginn 8. apríl kl. 17:30.

Íbúar Raufarhafnar og aðrir áhugamenn um samfélagið á Raufarhöfn.

Boðað er til fundar þar sem íbúum og verkefnisstjórn byggðaþróunarverkefnis Byggðastofnunar, Háskólans á Akureyri, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, Norðurþings og íbúa gefst tækifæri til að fara yfir stöðuna, það helsta sem unnið hefur verið að og verkefni framundan.

Fundarboðendur hvetja íbúa staðarins eindregið til að fjölmenna á fundinn, léttar veitingar í boði.
Verkefnisstjórn byggðaþróunarverkefnis,
Stjórn Íbúasamtaka Raufarhafnar