Fara í efni

Jólakveðja frá Vefstjórum



1. sveinn

Í dag er hann Stekkjastaur mættur,
stirðfættur, úfinn og tættur,
á ferilsskrá sést
að hann fílar sig best
á kindum - og er ekkert hættur.

2. sveinn

Þó glaðar þær láti sig gilja
samt grýluson engan þær vilja.
Þennan jafnréttisskort
af sverustu sort
hann Giljagaur er ekki að skilja.

3. sveinn

Þó lipur víst sýnist og ljúfur,
er leiðir hann mey bak við þúfur,
um vonbrigðin þar
er vitað eitt svar:
Hann verður og er alltaf Stúfur.

4. sveinn

Finnast þeim ljúfastir leikir,
sem lítt eru í stúlkurnar veikir,
ef mega í leyni
leika með sveini
og það er hann Þvörusleikir.

5. sveinn

Sumir þeir verða svo veikir
í vibbann, að hreinlega kveikir
velgju í hrinum
í velflestum hinum,
líkt og naglinn hann Náttpottasleikir.

6. sveinn

Fúlustu farsóttir kveikir,
fólkið í stórhópum veikir,
svo kærulaus er
með kjaftinn á sér
aulinn hann Askasleikir.

7. sveinn

Kátustu konur oft hrellir
og karlana onaf þeim fellir,
með skarki og hvin
og skrölti og dyn,
hálvitinn Hurðaskellir.

8. sveinn
Skyrgámur er skítlega með hrekki,
skálka honum líka marga þekki,
sem ábyrgð ekki bera
og einkum þetta gera:
sletta skyri sem þeir eiga ekki.Jólakisi

9. sveinn
Út í reykhús ráfar Bjúgnakrækir
í rökkrinu og vænan sperðil sækir.
Best skal að því gá
að börn ei nái að sjá
er tappa þeim sig treður í og skrækir.

10. sveinn

Úti í stiga er perri að príla
og píur sem ná ekki að skýla
gluggum sér hjá
gægist hann á.
Hvurslags uppeldi er þetta, Grýla?

11. sveinn

Hann telur sig meiri þeim mestu
í mati á listverki bestu.
Við gátt hverja að þef
leitar gagnrýnisnef
og skítalykt finnur af flestu.

12. sveinn

Ef fréttir af brúklegum bita
hann brýst gegn um kafreyk og hita,
með krók sinn af stað
til að komast í það
sem eigendur ei mega vita.

13. sveinn

Hann klárlega er kvalin af því
að kerti, jafnt gömul sem ný,
þráir hreint trylltur
og þágufalls spiltur,
mjálmandi: Mér langar í.

Jólakisi

Af öllum þeim óhræsis fressum 
er út af við sálina stressum 
er klárlega víst, 
sé ketti rétt lýst, 
að innræti er alverst hjá þessum.

Grýla

"Gamla sauði, ef gestum við bjóðum,
geit og kýrlæri, steikjum og sjóðum,"
sagði Grýla og hló
"en gottið er þó
léttsteikt fillet af frekjuskjóðum."

Leppalúði

Að vera sá lúðinn sem leppar
lítið upp glaðlyndið peppar.
Í sífelldri törn
þig taka í görn
svikulir fjármálaseppar.