Fara í efni

Kirknaganga á Langanesi

Kirknaganga á Langanesi 
Ferðafélagið Norðurslóð stendur fyrir göngu á föstudaginn langa, þann 18. apríl, og verður að þessu sinni gengið frá Þórshafnarkirkju að Sauðaneskirkju á Langanesi. Leiðin er um 7 km. Á leiðinni og við kirkjurnar verður miðlað fróðleiksmolum um sögu þeirra og fleira. Í göngulok verður boðið upp á hressingu, og fólk síðan ferjað til baka. 
Lagt verður af stað frá Þórshafnarkirkju kl. 13:00.
Vonast er eftir góðri þátttöku í hressandi göngu.

Kveðjum vetur og fögnum vori.