Fara í efni

Kynning á fjarnámi frá Háskólanum á Akureyri

Háskólinn á Akureyri verður með kynningu á fjarnámi sínu í Ráðhúsi Raufarhafnar mánudaginn 7. apríl kl. 17:00.

Háskólinn  leggur mikið upp úr því að þjónusta fjarnema sína vel og gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að fólk geti sótt sér háskólamenntun óháð búsetu.

Starfsmaður Menntasetursins á Þórshöfn verður einnig á svæðinu að kynna þá þjónustu sem fjarnemum býðst.

  Hvetjum áhugasama til að mæta.