Fara í efni

Lýðræðisleg þátttaka innflytjenda - Your vote, your voice

ÞITT ATKVÆÐI – ÞÍN RÖDD

Ertu einstaklingur af erlendum uppruna búsettur hér í sveitarfélaginu Norðurþingi?

Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar í vor og ef þú hefur verið búsett/búsettur á Íslandi í þrjú ár samfleytt þá hefur þú rétt til að kjósa.

Hefur þú áhuga á að fá fræðslu um réttindi þín, hlutverk sveitarstjórna, sveitarstjórnarkosningarnar og hvernig þú getur tekið þátt í lýðræðinu á Íslandi? Hefur þú áhuga á að hitta aðra til að ræða málin og deila eigin reynslu?
Ef þú hefur áhuga bjóðum við þér að skrá þig hér að neðan til að fá frekari upplýsingar um vinnustofur sem við munum halda í Norðurþingi og hvernig þú getur tekið þátt:

Á Kópaskeri 7.-8. mars 2026 í Öxi (fyrir ofan Skerjakollu) - Frá kl. 10:00-17:00 þann 7. mars og frá kl. 13:00-16:00 þann 8.mars
Á Húsavík 14.-15. mars á skrifstofu Norðurþings, Garðarsbraut 5 - Frá kl. 10:00-17:00 þann 14. mars og frá kl. 13:00-16:00 þann 15.mars

Verkefnið er stutt af félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og innleitt í samstarfi við Samtök íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélagið okkar og fleiri sveitarfélög víða um land, verkalýðsfélög, félagasamtök og íslenskuskóla.

Það kostar ekkert að kynna sér málin og taka þátt !
Hádegismatur innifalinn.

Hlökkum til að fá skráningu frá þér og hafa svo samband við þig!

Skráning hér!