Fara í efni

Myndlistanámskeið á Raufarhöfn 9-13 ágúst

Myndlistaskólinn í Reykjavík upp á áhugavert námskeið á Raufarhöfn, dagana 9.-13. ágúst.
Námskeiðið hentar fólki á öllum aldri en markmiðið er að kynna myndlistina sem verkfæri til rannsóknar og skoðunar.
Viðfangsefnið er náttúra svæðisins. Þátttakendur fá einnig innsýn í menningu, sögu og samfélag sem enn blómstrar á þessu hrjóstruga en hlunnindaríka svæði. Sjónum verður jöfnum höndum beint að gróðri jarðar, fjörunni og hinum fjölmörgu, ísöltu lónum sem einkenna svæðið. Fuglalífi, smádýrum og plöntum verður gefinn gaumur og fylgst með því hvernig fiskurinn hegðar sér á ólíkum tímum sólarhringsins. Þeir sem hafa áhuga á veiðiskap munu því ennfremur finna ýmislegt við sitt hæfi.
Teikniblokk, blýantur og vatnslitir verða aðalverkfærin en vasaljós, stækkunargler, smásjá, myndavél og önnur þessháttar tól eiga fullt erindi í verkfærakistu þátttakenda – að ógleymdri veiðistönginni.
Leiðbeinendur verða myndlistarmennirnir Sigtryggur Bjarni Baldvinsson og Þórarinn Blöndal (sem jafnframt eru dellumenn um silungsveiði).
Verð: 96.000 kr.-
Innifalið í verðinu er hádegis- og kvöldverður í fimm daga en námskeiðinu lýkur með veislu að kvöldi föstudagsins 13. ágúst. Fólk er hvatt til að kynna sér styrki stéttarfélaga.
Ýmsir gistimöguleikar eru á svæðinu. Skólinn getur útvegað gistingu á hagstæðu verði í íbúðum á Raufarhöfn en verðið ræðst af fjölda. Áhugasamir um slíkt sendi póst á snorrihilmars@simnet.is
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Rannsóknastöðina Rif og Heimsenda, menningarfélag Óskarsbragga með tilstyrk frá Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra
Frekari upplýsingar og skráning á mir.is Einnig má sjá frekari upplýsingar á facbookviðburðinum