Fara í efni

Norðurþing- Styrkir til lista- og menningarmála

Æskulýðs- og menningarnefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála. Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.

Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á heimasíðu Norðurþings http://www.nordurthing.is/is/mannlif/menning-og-listir/lista-og-menningarsjodur.

Umsóknum vegna úthlutunar í apríl 2016 skal skila á skrifstofu Norðurþings á Húsavík eigi síðar en 5. apríl n.k. eða með tölvupósti á snabbi@nordurthing.is. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.

F.h. Æskulýðs- og menningarnefndar Norðurþings.

Snæbjörn Sigurðarson Menningarfulltrúi s. 669-8425, snabbi@nordurthing.is