Fara í efni

Ráðið í starf verkefnastjóra á Raufarhöfn

Ráðið í starf verkefnastjóra á Raufarhöfn

Silja Jóhannesdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri byggðeflingarverkefnisins „Raufarhöfn og framtíðin“. Verkefnið er eitt af átaksverkefnum Byggðastofnunar á landsvísu í samstarfi við atvinnuþróunarfélög og sveitarfélög undir heitinu „Brothættar byggðir“.

Silja var valin úr hópi margra hæfra umsækjenda en alls sóttu átján um starfið, átta konur og tíu karlar. Hún er Eyfirðingur, fædd 1979 og hefur búið hér fyrir norðan, austur á landi og á höfuðborgarsvæðinu þar sem hún er búsett í dag. Hún er með BA gráðu í stjórnmálafræði og menntun í viðskiptafræði og leggur nú stund á MBA nám við Háskólann í Reykjavík. Hún hefur reynslu af því að leiða verkefni, m.a. með ungu fólki og þar sem reynt hefur á að fá ólíka aðila til að vinna að sameiginlegu marki. Meðal fyrri starfa má nefna rekstur félagsmiðstöðvar, sérverkefni fyrir Alcoa við kennslu erlendra barna starfsmanna, vaktstjórn hjá Hagstofunni við rannsóknir og gagnasöfnun og ráðgjöf hjá Capacent við ráðningar og innleiðingu tæknikerfa.

Silja mun koma til starfa hjá atvinnuþróunarfélaginu í apríl.

 

Tekið af vef http://www.atthing.is/