Fara í efni

Rauðanesganga



Ferðafélagið Norðurslóð óskar félögum sínum til hamingju með hækkandi sól og boðar til fyrstu göngu ársins. Hún verður farin sunnudaginn 18. janúar um Rauðanes í Þistilfirði.
Á göngunni má sjá ótal fallegar bergmyndanir, hella, gatkletta og fuglabjörg. Þetta er auðfarin gönguleið, um 7 km. Lagt verður upp frá upplýsingaskilti kl. 13:00.
Mætum vel klædd og skóuð eftir veðri, og ekki skemmir að hafa með sér nestisbita og heitan drykk á brúsa.

Göngukveðjur,
Halldóra