Fara í efni

Rekstur Hótel Norðurljósa auglýstur til leigu

Norðurþing auglýsir rekstur Hótels Norðurljósa til leigu frá 1. febrúar 2016 til 31. október 2016.
Hið leigða er hótelhlutinn að Aðalbraut 2, 15 herbergi, matsalur og íbúð, nafn hótelsins og rekstrarbúnaður samkvæmt lista. Hótelið var í fullum rekstri fram í nóvember 2015.

Óskað er eftir tilboðum í leigu á ofangreindu tímabili en skila þarf lýsingu á áformum rekstraraðila með þjónustu og gæðaviðmið sem haft verður í huga við rekstur hótelsins. Gert er ráð fyrir að leigutaki greiði allan almennan kostnað af rekstrinum, svo sem rafmagn, viðhald búnaðar og minniháttar viðhald húsnæðis í samræmi við húsaleigulög 36/1994. Ekki er gert ráð fyrir neinum meirháttar breytingum á húsnæðinu á leigutímanum. Eignin verður auglýst til sölu á leigutímanum.

Húsnæðið verður til sýnis mánudaginn 25. janúar 2016 frá kl. 10 til 14. Nánari upplýsingar gefur Tryggvi Finnsson, netfang: tryggvif@simnet.is , sími 4641349/8641343.
Norðurþing áskilur sér rétt að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Skila skal tilboðum til Norðurþings,
Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík eða nordurthing@nordurthing.is eigi síðar en mánudaginn 31. janúar 2016.