Fara í efni

Styrkir til bættrar einangrunar – Átaksverkefni 2014 Raufarhöfn

Í tengslum við byggðaþróunarverkefni á Raufarhöfn hefur Atvinnuvega- og Nýsköpunarráðuneytið í samvinnu við Orkusetur ákveðið að styrkja húseigendur sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis á Raufarhöfn. Verkefnið er styrkt af Byggðastofnun.

Aðgerðir sem falla undir verkefnið eru:

- Glerskipti þar sem gömlu gleri er skipt út fyrir betur einangrandi gler. Skilyrði er að nýja glerið hafi U gildi undir 1,7
- Einangrun á þakplötu eða milli sperra í þaki. Styrkt verða efniskaup á steinull og skilyrði er að koma megi fyrir að lágmarki 200 mm.
- Klæðning, þar sem húsnæði er klætt að utan. Skilyrði er að viðunandi einangrun sé undir klæðningu.

Um styrk getur sótt hver sá eigandi húsnæðis sem fær húshitunarkostnað sinn niðurgreiddan úr ríkissjóði. Við mat á umsóknum verður horft til orkunotkunar húsnæðis og núverandi ástands einangrunar. Forgang hafa verkefni þar sem orkunotkun er mikil í
samanburði við viðmiðunargildi. Upphæð styrks miðast við 50% af efniskostnaði auk flutningskostnaðar að hámarki
500.000 kr.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Orkuseturs www.orkusetur.is
Nánari upplýsingar fást í síma 569 6085. Einnig er hægt að hafa samband við Orkusetur á netfanginu sif@os.is

Umsóknarfrestur er til 20.06.2014

Einangrun

Góð einangrun húsnæðis er forsenda þess að hægt sé að halda orkunotkun til hitunar í lágmarki. Orkusetur hefur sett upp þrjár gagnvirkar reiknivélar sem aðstoða húseigendur við að átta sig á þeim orkusparnaði sem fylgir slíkum framkvæmdum. Ein reiknivélin reiknar út orkusparnað við endurglerjun. Notendur velja fyrst veðurstöð næst þeim og síðan stærð gluggaflatar, óskainnhita og glergerð fyrir og eftir breytingar. Reiknivélin gefur upp orkusparnað. Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina:
http://www.orkusetur.is/page/reiknivel_glerskipti Önnur reiknivél metur orkusparnað vegna nýrrar klæðningar. Virknin er svipuð, notendur velja fyrst veðurstöð næst þeim og síðan flöt útveggja, óskainnhita, byggingartímabil og að lokum þykkt nýrrar einangrunar. Reiknivélin gefur síðan upp orkusparnað vegna klæðningarinnar og hægt er að reikna fyrir eitt ár eða fleiri. Smelltu á eftirfarandi slóð til að nálgast reiknivélina: http://www.orkusetur.is/page/reiknivel_nyklaedning Þriðja reiknivélin reiknar út mögulegan sparnað sem fæst með bættri þakeinangrun. Þar velja notendur veðurstöð og setja inn fermetra undir þaki. Reiknivélin áætlar orkusparnað miðað við þykkt steinullar sem bætt er við. http://www.orkusetur.is/page/reiknivel_thakull