Fara í efni

Sumarfjarnám 2015

Sumarfjarnám 2015 þjálfaramenntun

1. og 2. stigs ÍSÍ

Sumarfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ mun hefjast mánudaginn 29. júní nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur og gildir námið jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 25.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði og send á heimilisföng þátttakenda. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 22.000.- Skráning er á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 26. júní. Með skráningu þarf að fylgja fullt nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer og taka þarf skýrt fram á hvaða stig verið er að skrá. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Allar nánari uppl. um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 460-1467 & 863-1399 eða á vidar@isi.is Með bestu kveðju, Viðar Sigurjónsson Skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri Þjálfaramenntun ÍSÍ – Fyrirmyndarfélag ÍSÍ