Fara í efni

Þorrablót Raufarhafnar 2015.

Þorrablót Raufarhafnar

Þorrablót Raufarhafnar verður haldið í Félagsheimilinu Hnitbjörgum þann 7. febrúar n.k. Forsala miða verður í Hnitbjörgum sama dag frá kl. 12:00 – 13:00 og er miðaverð 4.000 krónur. Við viljum biðja fólk um að taka sig saman um hvað margir eru í þeirra hóp og tilkynna inn til nefndarinnar á póstfang olga@raufarhofn.is  eða í síma 863-1374 fyrir fimmtudaginn 5. febrúar. Nefndin mun svo raða eftir bestu getu í salinn. Ekki er hægt að panta ákveðin borð.

Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00


Að skemmtidagskrá lokinni mun hljómsveitin Nefndin  leika fyrir dansi.

Að venju efnum við til samkeppni um besta botninn, en fyrriparturinn er svona:

Getuleysi er grátlegt hér,
grípa þarf til varna.




Botnum skal skila í Verslunina Urð fyrir kl. 12:00 föstudaginn 6. febrúar undir dulnefni.

Hótel Norðurljós-

býður upp á gistingu, morgunverð og þorrabakka fyrir aðeins 12.000 krónur á mann en verð á þorrabakka er 4.000 krónur á mann.

Gistiheimilið Hreiðrið -

Býður upp á  - tveggja manna herbergi á 12.000 kr  og eins manns á 7.000 kr.


Aldurstakmark 16 ára og eldri.

Þorrablótsnefnd:

Ragnar Axel Jóhannson
Olga Friðriksdóttir
Einar Sigurðsson
Ania Romanska
Árni Gunnarsson
Ingibjörg Hanna Sigurðardóttir
Þór Friðriksson
Ágústa Valdís Svansdóttir.