Fara í efni

Vígsla sparkvallar og Kvennahlaup ÍSÍ

Frá UMF Austra

Vígsla sparkvallar

Laugardaginn 14. júní kl. 14:00 ætlum við að fagna formlegri vígslu sparkvallar. Við þetta tækifæri viljum við sýna þakklæti okkar fyrir þá miklu hjálp við þökulagningu með því að bjóða íbúum og gestum upp á grillaðr pylsur.  Fulltrúar sveitarfélagsins mæta og stjórna leikjum og léttu sprelli. Óvæntur glaðningur verður í boði fyrir Austrabörn og unglinga.

Við hvetjum alla til að koma og eiga skemmtilega stund saman.

 Kvennahlaup ÍSÍ verður sama dag.

Hlaupið verður frá íþróttahúsinu kl. 11:00.  Þátttakendum býðst að fara frítt í sund á opnunartíma sundlaugar kl. 17:00 – 19:00.

Þátttökugjald er 1.000 krónur fyrir 12 ára og yngri og 1.500 fyrir 13 ára og eldri. Hægt er að kaupa boli í ráðhúsinu og einnig á staðnum fyrir hlaup.

 

Bestu kveðjur,

stjórn UMF Austra og Norðurþing