Fara í efni

Orkusalan gefur Norðurþingi rafhleðslustöð

Í gær (8/12) komu starfsmenn Orkusölunnar færandi hendi í stjórnsýsluhús Norðurþings.  Tilgangur þeirra var að færa Norðurþingi rafhleðslustöð fyrir ökutæki að gjöf en Orkusalan gefur öllum sveitarfélögum eina slíka stöð.  Norðurþing fagnar þessari gjöf sem mun verða sett upp sem fyrst, við stjórnsýsluhúsið á Húsavík.