Hlutverk félagsþjónustunnar er m.a. að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla
að velferð á grundvelli samhjálpar. Þjónustan byggir á því að koma til móts við þarfir þeirra sem eftir
þjónustunni leita. Markmið félagslegrar ráðgjafar er að hjálpa fólki til sjálfshjálpar þannig að sérhver
einstaklingur geti sem best notið sín í samfélaginu. Starfsmenn sem sinna félagsþjónustu eru Guðrún Kristín Jóhannsdóttir ráðgjafi, Díana
Jónsdóttir ráðgjafi og Dögg Káradóttir
félagsmálastjóri. Einnig sinnir Ingibjörg Sigurjónsdóttir sálfræðingur
einstökum málum.
Félagsmála- og barnaverndarnefnd Þingeyinga er fimm manna nefnd skipuð af Héraðsnefnd. Nefndin ber formlega ábyrgð á meðferð allra einstaklingsmála en starfsmenn sinna daglegri meðferð og afgreiðslu. Sveitarfélögin sem heyra undir Félagsmála- og barnaverndarnefnd Þingeyinga eru: Norðurþing, Skútustaðahreppur, Þingeyjarsveit, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð.
Félagsmála-og barnaverndarnefnd Norðurþings er fimm manna nefnd sem ber ábyrgð á almennum málum og stefnumótun í málaflokkum innan félagsþjónustu.
Þeir sem óska eftir þjónustu félags- og skólaþjónustunnar geta annað hvort hringt og pantað tíma í síma 464 6100 eða fyllt út tilvísunareyðublað.
Félagsþjónustunni er ætlað að sinna verkefnum sveitarfélaganna samkvæmt lögum, t.d. lög nr. 40/1991um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnaverndarlög nr.80/2002, lög um grunnskóla nr.66/1995, lög um leikskóla nr.78/1994og lög um málefni fatlaðra nr.59/1992. Einnig er unnið samkvæmt öðrum lögum svo sem ættleiðingalögum og barnalögum nr.76/2003.
Á Félagsþjónustunni starfar sérmenntað starfsfólk og er það bundið þagnarskyldu um málefni einstaklinga sem þangað leita. Undantekningu frá þagnarskyldu má einungis gera samkvæmt lagaboði svo sem ef barni er hætta búin. Starfsmenn fara í reglulegar ferðir um sýslurnar til að færa þjónustuna nær íbúum þeirra.
Tvær félagsmála-og barnaverndarnefndir eru starfandi: Félags- og barnaverndarnefnd Norðurþings sem tekur fyrir öll almenn mál og stefnumótandi mál og félags-og barnaverndarnefnd Þingeyinga sem tekur fyrir öll einstaklingsmál. Auk þess er Menningar- og fræðslunefnd starfandi.
Félagsmálastjóri: Dögg Káradóttir félagsráðgjafi



