Íþróttir

Í Norðurþingi er öflugt íþróttastarf.  Íþróttafélagið Völsungur á Húsavík hefur innan sinna raða knattspyrnudeild, fimleikadeild, handknattleiksdeild,

Íþróttastarfsemi

Í Norðurþingi er öflugt íþróttastarf. 

Íþróttafélagið Völsungur á Húsavík hefur innan sinna raða knattspyrnudeild, fimleikadeild, handknattleiksdeild, skíðadeild, bocciadeild, frjálsíþróttadeild, blakdeild og siglingadeild.

Ungmennafélagið Austri á Raufarhöfn heldur uppi fótbolta- og frjálsíþróttaæfingum allt árið um kring fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri.  Jafnframt er boðið upp á leikjanámskeið fyrir börn 10 ára og yngri.

Golfklúbbur Húsavíkur telur u.þ.b. 150 félaga og af þeim eru um 40 krakkar. Golfklúbburinn heldur úti Katlavelli, sem er 9 holu golfvöllur og hafa mótin undanfarin ár verið rétt rúmlega 20 talsins og 5-7 mót af þeim opin mót.

Skákfélagið Goðinn stendur fyrir reglubundnum skákæfingum og skákmótum frá september til og með apríl ár hvert.  Skákæfingarnar eru haldnar til skiptis á Húsavík og á Laugum í Þingeyjarsveit öll mánudagskvöld yfir vetrartímann.  Skákmót félagsins eru haldin víðsvegar um Þingeyjarsýslur.

Skotfélag Húsavíkur var stofnað árið 1964 og var þá upphaflega skotveiðifélag.  Í seinni tíð var félaginu breytt í skotfélag og samþykktum þess breytt í samræmi við það.  Tilgangur þessara breytinga var að félagið yrði aðildarfélag að Héraðssambandi Þingeyinga (HSÞ).  Allar götur síðan hefur félagið starfað undir merkjum ÍSÍ. 

Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya