Fara í efni

Sundlaugin á Raufarhöfn - staða mála - uppfært!

Verið er að mála sundlaugina á Raufarhöfn og eins og gefur að skilja er hún lokuð á meðan verkinu stendur.
Verkinu miðar vel og eins staðan er í dag er verið að mála sundlaugarbakkan. Það er unnið með lyktarsterkri málningu og eru búningsklefar íþróttahússins því líka lokaðir frá föstudeginum 14. október fram til föstudagsins 21. október.
Opnun íþróttahúss og líkamsræktar er óbreytt þó að klefarnir séu lokaðir. 
Stefnt er að opnun í nýmálaðri sundlaug vikuna 23-29 október.

Uppfært - 19.10.2016 -
Verið er að leggja lokahönd á verkið og verður byrjað að láta renna í laugina mánudaginn 24. október. 
Stefnt er að opna aftur föstudaginn 27.október.