Fara í efni

Þrjú tilboð bárust í Flókahús

Fjölmenni var við opnun tilboða í Flókahúsið sem fram fór í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík kl 16 í dag. Þrjú tilboð bárust í húsið, frá Sölkusiglingum, Norðursiglingu og Gentle Giants. Öllum tilboðunum fylgdi greinargerð um fyrirhugaða starfsemi sem og breytingar á húsinu.

Bjóðandi:             Upphæð:

Sölkusiglingar       20.100.000
Norðursigling        31.227.600
Gentle Giants        37.000.000

Byggðaráð mun í framhaldinu taka málið til afgreiðslu.

Engin tilboð bárust í Skemmuna sem einnig var auglýst til sölu.