Fara í efni

Kynning skipulags- og matslýsinga vegna breytingar aðalskipulags Norðurþings

Kynning skipulags- og matslýsinga vegna breytingar aðalskipulags Norðurþings og samsvarandi deiliskipulags fyrir efnislosunarsvæði  á Skjólbrekkumel auk skipulagskynninga

Bæjarstjórn Norðurþings, að tillögum skipulags- og byggingarnefndar, samþykkti á fundi sínum þann 23. september 2014 að kynna skipulags- og matslýsingar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytingar á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 og skv. 3. mgr. 40. gr. vegna nýs deiliskipulags fyrir efnislosunarsvæði á Skjólbrekkumel norðan Húsavíkur.  Ætlað er að skipulagstillögur fjalli um losun lausra jarðefna á um 2,6 ha svæði norðan fjallsafleggjara.

 

Skipulags- og matslýsingar þessar eru nú til kynningar á heimasíðu Norðurþings (www.nordurthing.is). Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við lýsingarnar er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 21. október 2014.  Tekið verður á móti skriflegum ábendingum á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti (gaukur@nordurthing.is).

 

Ennfremur er boðað til kynningarfundar skv. 2. mgr. 30. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga á tillögum að ofangreindum skipulögum ásamt tilheyrandi umhverfisskýrslum á opnu húsi í fundarsal bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, mánudaginn 6. október n.k. milli kl. 14 og 16.  Á sama fundi verður kynnt tillaga að deiliskipulagi norðurhafnarsvæðis á Húsavík ásamt umhverfisskýrslu.

 

 

Húsavík 30. september 2014

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi