Fara í efni

Styrkir til lista- og menningarmála auglýstir til umsóknar

Fræðslu- og menningarnefnd Norðurþings auglýsir eftir umsóknum um styrki til lista- og menningarmála.

Styrkirnir eru veittir samkvæmt skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs Norðurþings og reglum um úthlutun úr sjóðnum.
Úthlutun úr sjóðnum fer fram tvisvar á ári, í mars og október. Skipulagsskrá Lista- og menningarsjóðs ásamt reglum um úthlutun úr sjóðnum má nálgast á heimasíðu Norðurþings http://www.nordurthing.is.
Umsóknum vegna úthlutunar í október 2015 skal skila á skrifstofu Norðurþings á Húsavík eigi síðar en 9. október n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.

F.h. Fræðslu- og menningarnefndar Norðurþings.
Snæbjörn Sigurðarson
Menningarfulltrúi
s. 669-8425,
snabbi@nordurthing.is

Merki Orkuveitu Húsavíkur

styður við lista- og menningarstarf í Norðurþingi