Fara í efni

Götulýsing í Auðbrekku - Erindi til Sveitarstjórnar Norðurþings

Málsnúmer 201609002

Vakta málsnúmer

Framkvæmdanefnd - 8. fundur - 14.09.2016

Erindi barst frá Ágústi Sigurði Óskarsyni þar sem að hann vekur athygli á biluðum ljósastaurum í Auðbrekku. Ágúst óskar þess að gert verði við staurana sem allra fyrst.
Framkvæmdanefnd harmar hversu lengi viðgerð hefur dregist. Ástæðan er sú að ljósastrengurinn í götunni brann yfir og þarf að leggja nýjan.
Samkvæmt upplýsingum frá verkstjóra Orkuveitunnar er unnið að viðgerð og mun henni ljúka næstu daga.