Fara í efni

Grunnskóli Raufarhafnar - Ósk um breytingu á skóladagatali 2016-2017

Málsnúmer 201609025

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 5. fundur - 14.09.2016

Fyrir nefndinni liggur ósk skólastjóra Grunnskólans á Raufarhöfn um breytingu á skóladagatali. Óskað er eftir eftirfarandi breytingu: Í stað starfsdags fyrir starfsfólk grunnskólans þann 16. september og sameiginlegs starfsdags í leik- og grunnskóla 3. október verði sameiginlegur starfsdagur leik- og grunnskóla þann 19. september á Húsavík vegna námskeiðs sem þar verður haldið. Starfsdagur starfsmanna grunnskólans yrði færður til 3. október.
Nefndin samþykkir breytinguna.