Fara í efni

Flutningur bókasafnsins á Raufarhöfn í Grunnskóla Raufarhafnar

Málsnúmer 201609167

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 5. fundur - 14.09.2016

Menningarfulltrúi Norðurþing og forstöðumaður Bókasafna Norðuþings óska eftir því við fræðslunefnd að kannaður verði sá möguleiki að bókasafnið á Raufarhöfn fái rými í húsnæði Grunnskóla Raufarhafnar. Fyrirsjáanlegt er að safnið þurfi að flytja úr núverandi húsnæði á næstunni.
Fræðslunefnd tekur vel í erindið og felur skólastjóra að vinna málið áfram með menningarfulltrúa og forstöðumanni Bókasafna Norðurþings.