Fara í efni

Borgin frístund leitar eftir starfsfólki

Borgin frístund leitar að sjálfstæðum einstaklingum með góða færni í mannlegum samskiptum til að vinna í lengdri viðveru fyrir fötluð grunnskólabörn í 5. - 10. bekk. Starfið felst í tómstunda- og dægradvöl með fötluðum grunnskólabörnum á aldrinum 10-18 ára. Markmið lengdu viðverunnar er að efla félagslegan þroska þátttakenda og stuðla að virkni og félagslegri þátttöku ungmenna í frístundum. Í starfinu er nærumhverfið notað til að þjálfa ungmennin í sjálfstæði, félagsfærni og samskiptafærni. Þátttakendunum er mætt á þeirra grundvelli og þeim veitt þjónusta við hæfi.

Starfið

  • Tómstunda- og dægradvöl með fötluðum grunnskólabörnum á aldrinum 10-18 ára.
  • Einstaklingsmiðu þjónusta
  • Virk Þátttaka með grunnskólabörnunum í skapandi starf og tómstundir
  • Samskipti og samstarf við starfsfólk, þátttakendur, foreldra, skóla og hinar ýmsu stofnanir sem tengjast starfseminni
  • Í boði eru allt að 50%-100% störf.
  • Vinnutími er 12:00-16:00. Virka daga í frístundarúrræði, einnig er í boði að taka vinnu um helgar í skammntímadvöl
  • Um ótímabundin störf er að ræða

Menntun og hæfniskröfur

  • Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri
  • Reynsla í starfi með fötluðum börnum og unglingum er kostur
  • Hafa áhuga að vinna með fötluðum börnum og unglingum
  • Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð skilyrði
  • Hafa náð 18 ára að aldri
  • Góð Íslenskukunnátta er skilyrði

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknir  skulu berast Írisar Myriam Waitz forstöðumaður Borginar irisw@nordurthing.is

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Nánari upplýsingar gefur Íris Waitz í síma 464-6100.

Umsóknarfrestur er til og með 18. apríl 2024.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið