Fara í efni

Bréf til allra sveitarfélaga - tilkynning um skil starfshóps, nýjar reglur um persónuvernd

Málsnúmer 201612036

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 201. fundur - 13.01.2017

Fyrir byggðarráði liggur bréf til allra sveitarfélaga varðandi skil starfshóps um skoðun á skráningum upplýsinga um nemendur grunnskóla í rafræn upplýsingakerfi. Einnig er í bréfi þessi kynnt til sögunnar ný persónuverndarlöggjöf sem áætlað er að taki gildi á árinu 2018 og hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga öll sveitarfélög til þess að hefja undirbúning vegna gildistöku laganna nú þegar.