
Forstöðumaður: Sigríður Hauksdóttir
Staðsetning: Garðarsbraut 21, 640 Húsavík
Sími: 464-9777
Miðjan er hæfingarmiðstöð sem hefur það að markmiði að efla alhliða þroska og sjálfstæði einstaklings og viðhalda og auka þá færni sem einstaklingurinn hefur náð. Jafnframt að veita vellíðan og öryggi og efla frumkvæði og koma til móts við sjálfsákvörðunarrétt. Notendur skiptast í þrjá hópa:
1. Fólk með væga þroskahömlun og/eða sértæka námsörðugleika
2. Fjölfatlaðir einstaklingar sem eru íbúar í Pálsgarði
3. Fólk með þroskahömlun sem er í sjálfstæðri búsetu eða býr í foreldrahúsum.
Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun ásamt því að að starfa eftir áhugasviði og færni hvers og eins. Helstu verkefni eru skapandi starf, afþreying, matseld og ýmis önnur heimilisstörf ásamt hæfingu.
Einkunnarorð Miðjunnar eru: Virðing, vinátta og vellíðan.



