Borgarhólsskóli

Skólastjóri:  Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir Deildastjóri:  Hanna

Borgarhólsskóli

Skólastjóri:  Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir

Deildastjóri:  Hanna Ásgeirsdóttir
Sími:464-6140
Fax:464-2133
Netfang: skoli@borgarholsskoli.is
Veffang: http://www.borgarholsskoli.is/
Staðsetning: Skólagarði 1, 640 Húsavík
Skólasel: 4646 152

Skrifstofa skólans er opin alla skóladaga frá kl. 8:00 - 16:00

Borgarhólsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.- 10. bekk. Skólinn varð til við sameiningu Barnaskóla Húsavíkur og unglingadeilda Framhaldsskóla Húsavíkur. Barnaskólinn tók til starfa í sérstöku skólahúsi árið 1896 en fékk nafnið Borgarhólsskóli 1992 þegar unglingadeildir (8., 9. og 10. bekkur) voru sameinaðar undir einu þaki í viðbyggðu skólahúsi Barnaskólans. Fyrsti nemendahópurinn útskrifaðist frá Borgarhólsskóla 1994.

Nemendur eru 319 vorið 2010. Skóladagurinn hefst kl. 8:15 en skóladagur nemenda er mislangur sbr. Aðalnámskrá grunnskóla. Skólamötuneyti er starfrækt á Fosshótel Húsavík.

Nemendum í 1.- 4. bekk gefst kostur á dvöl í Skólaseli eftir að skóla lýkur á daginn. Fatlaðir nemendur á grunnskólaaldri eiga líka rétt á þjónustu í Skólaseli. Hlutverk Skólaselsins er að mæta þörfum fjölskyldna á Húsavík með því að skapa yngstu nemendunum öruggan og notalegan samastað, síðdegis. Lögð er áhersla á að flétta saman, í samvinnu við aðrar stofnanir, íþróttaæfingar, tómstundastarf, fræðsluverkefni og tónlistarnám ásamt næringu og hvíld. Skólaselið er staðsett í skólahúsi Borgarhólsskóla.

Tónlistarskóli Húsavíkur sem stofnaður var 1961 starfar í sama skólahúsi í nánu samstarfi við Borgarhólsskóla. Nemendur stunda tónlistarnám á skólatíma við Tónlistarskólann ef svo ber undir. Nemendur í 1.- 5. bekk fá aukinn tónlistartíma samkvæmt námskrá Tónlistarskólans. Nemendum í 8.-10. bekk gefst kostur á því að stunda tónlistarvalgrein við Tónlistarskólann. Auk þess starfa skólarnir saman að félags- og skemmtanahaldi. 

Valmynd

Póstlisti

headerheaderheaderheader